ALLA JÓLASVEINA MÁ FINNA Í DIMMUBORGUM

Við stórfjölskyldan vorum í Dimmuborgum á sunnudag í skemmtiferð þegar við römbuðum frammá tvo jólasveina og skilst mér að hinir hafi verið nærri í hellinum þeirra. Við ákváðum að leita ekki frekar að hellinum, enda hættan á að hitta Grílu og Jólaköttin óásættanleg eins og kom berlega í ljós eftir að sérstakt áhættumat var unnið af yngstu kynslóðinni.

Jólasveinar

Þetta er þriðja árið sem farið er í Dimmuborgir á aðventunni, við mikinn fögnuð fjögurra kynslóða á aldrinum 5-75 ára. Ef lögreglan eða ef til vill aðrir borgarar í skemtiferðum hafa hug á að hitta á kauða eru allar upplýsingar á þessari vefsíðu hér

 

 

 

 

Með von um ánægjulega aðventu til ykkar allra! 


mbl.is Bjúgnakrækir og Ketkrókur á ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband