30.11.2011 | 20:12
Seint koma sumir en eru sérstakir þó
"Mikið var að beljan bar" heyrðist reglulega í mínu ungdæmi þegar biðlundin var á þrotum og kemur mér aftur í hug nú, þegar þrjú ár eru frá hruni ef mér telst rétt til og ENN ER BEÐIÐ EFTIR ÁKÆRUM FRÁ EMBÆTTI SÉRSTAKS SAKSÓKNARA.
Mikið væri gaman að fá hans sýn á það hvort raunverulegir höfuðpaurar hrunsins muni nokkurntíma gjalda fyrir gjörðir sínar?
Hvað veldur að biðin er svona löng eftir ákærum, og þá ákærum sem halda?
Líklega fleiri í gæsluvarðhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Björk. Það er ekki gott að segja til um hvað tafði málin. Miklar flækjur í svikaneti heimbanka-ræningja-þjónanna taka lengri tíma í rannsókn, til að greiða úr netaflækjunum, heldur en smávægilegar netaflækjur í smákrimma-samfélaginu.
Allir sem einhvertíma hafa greitt úr raunverulegum og bókstaflegum netaflækjum, skilja hvað ég á við með þessari samlíkingu.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.11.2011 kl. 20:36
Takk fyrir innlitið Anna Sigríður.
Ég velti því fyrir mér af hverju þetta tekur svona langan tíma hér þegar forsvarsmenn banka í Bandaríkjunum voru dregnir í burtu í handjárnum samdægurs og réttað var yfir þeim innan skamms tíma.Hvað veldur þessum svakalega mun?
BJÖRK , 30.11.2011 kl. 21:05
Björk
Getur verið að Bandaríkjamenn séu einfaldlega betri í því að setja á svið leiksýningar?
Get ekki betur séð en að topparnir í BNA hafi sloppið, og sumir hverjir ennþá í ríkisstjórn Obama, með puttana í bankamálum..
bofs bloggari hefur verið duglegur að fylgjast með, mæli með blogginu hans.
magus (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 00:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.